fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Rock star supernova

Vitiði hvað ég var svekkt yfir að fá ekki miða á þessa tónleika??? Nei, eflaust ekki, en ég var gráti næst á heilsugæslunni í Garðabæ þegar midi.is virkaði ekki vegna álags og svo var orðið uppselt. Ég var marga daga að jafna mig á þessu og var í alvöru að hugsa um að forða mér úr bænum hreinlega í dag til að þurfa ekki að vera í nágrenni við tónleikastaðinn. En sem betur fer gerði ég það ekki, því þá hefði ég ekki komist á aukatónleikana sem eru á morgun :D

Já, ég hef semst extra lítið fylgst með í fjölmiðlum undanfarið. Heyrði samt aðeins í útvarpi í Baðhúsinu um daginn og þá var einhver að tala um þessa tónleika, en sagði alltaf ,,þann þrítugasta-og-fyrsta næstkomandi". Ég var ógeðslega pirruð yfir þessu, hvaða helvítis hálfviti veit ekki að það eru bara 30 dagar í nóvember??? Ég var ekki að fatta þetta fyrr en í gær, þegar ég komst að því að það var búið að bæta við tónleikum 1.des. Júhúúú... ég skellti mér strax á midi.is og viti menn... ÉG FÉKK MIÐA :D :D :D

Nýja myndavélin verður tekin með og nokkrum römmum smellt af hr. Toby... með zoomið í botni ;)

Yfir og út!

5 Comments:

At 9:05 e.h., Blogger Elva said...

Jeiiii... ég var einmitt að spá um daginn þegar þú sagðir að þú hefðir ekki fengið miða á tónleikana af hverju þú færir ekki á aukatónleikana.... ég hef greinilega fylgst aðeins meira með fjölmiðlum á Íslandi en þú ;o)

En frábært! - Ég hlakka til að sjá myndir af Mr. Toby hérna á síðunni þinni :)

 
At 11:05 e.h., Blogger Sólveig said...

HAHAHA... fyndið! Það var líka bara hlegið að mér í dag þegar ég var að viðurkenna þetta fyrir bekkjarsyskinum mínum. Ég er greinilega aðhlátursefni víða um heim, hehe ;)

 
At 2:44 f.h., Blogger Sólveig said...

ARRRGGGG!!! Nú hef ég setið í tæpan klukkutíma við að reyna að sætta tölvuna og myndavélina... en gengur ekki neitt. Ætlaði að skella inn myndum af honum Toby sykurmolanum og félögum hans, það verður líklega bara að bíða betri tíma. Pétur IBM-fræðingur bara að slæpast í Köben meira að segja. :/

 
At 9:47 f.h., Blogger Elva said...

Heyrðu, ég trúi þér ekki!

ÉG vona að tölvan taki myndavélina fljótlega í sátt svo þú getir farið að setja inn myndir hérna. Ég bíð spennt eftir Toby :)

 
At 12:27 e.h., Blogger Sólveig said...

ahhh... já, Toby karlinn. :Þ

 

Skrifa ummæli

<< Home