miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Æfingabúðir dauðans...

Ég hef sjálfviljug skráð mig í æfingarbúðir dauðans... það var að byrja nýtt námskeið í Baðhúsinu í dag, Thai box... hvað svo sem það nú þýðir. Ég ákvað að prófa og er held ég DAUÐ. Þetta er þrekþjálfun óttans, minnir um margt á miðvikudagsæfingarnar hérna í den, ég er rauðari en allt rautt í framan, hóstandi úr mér lungum og lifur, nötrandi í hverjum vöðva, með blöðrur á hnúunum og fingrunum og með marbletti á höndunum... hljómar þetta ekki alveg einstaklega vel??? Mér líður reyndar eins og sprungnu dekki sem hefur verið keyrt á nokkrum kílómetrum of langt. Og fyrir þetta ætla ég semst að borga...

Það er útlenskur gaur með þetta námskeið, sennilega Breti, hann allavega talar með breskum hreim og við erum allar ýmist ,,darlin" eða ,,love"... frasar eins og ,,there you go love", that's my girl" og ,,come on darlin" hafa hljómað í eyrum mér í rúman klukkutíma í kvöld.

Mér er farið að líða örlítið betur núna reyndar og á eftir að halda áfram að batna vonandi... allavega þangað til strengirnir koma á morgun :/

Þar til síðar...

1 Comments:

At 5:54 f.h., Blogger Elva said...

Vá, eftir að ég hætti að mæta á kóreaska netkaffihúsið og fór á internetið í tölvunni minni hef ég næstum gleymt að fara á síðuna þína. Málið er að ég fer alltaf bloggrúnt sem ég er með í favorites og þar sem ég gleymdi að setja þig þar inn þá gleymdi ég blogginu þínu í smá tíma. Og viti menn - hérna er bara komið fullt af nýjum færslum :) Jeii... núna kíki ég við á hverjum degi!

Halda svona áfram Sólveig!

ps. takk fyrir póstinn, hann var æði :)

 

Skrifa ummæli

<< Home