laugardagur, júní 23, 2007

Íslenskir snillingar!

Íslendingar eru og verða snillingar. Þegar ég var spurð að því í Malaví hvernig Íslendingar væru sagði ég hreint út að við værum geðveik, og meinti það alveg hreint. Upp til hópa högum við okkur eins og fólk í maníu, keppumst við náungann út í eitt um stærri bíl, flottara hús, nýrri eldhúsinnréttingu og bara nefniði það, við gætum búið til samfélagskeppni úr því.

Met dagsins á samt ónafngreindur maður (sem er samt nafngreindur í skoti Fréttablaðsins í dag) sem var tekinn fyrir smygl í Brasilíu... manngreyið hélt að hann væri að smygla kókaíni en það reyndist vera barnapúður. Pæliði í því að vera svo dæmdur til að sinna samfélagsþjónustu fyrir að smygla barnapúðri inn til Brasilíu... HAHAHA! Þetta finnst mér fyndið.

3 Comments:

At 5:31 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Rétt, maður þarf að fara að undirbúa bíla- innbús- og fellihýsalánapakka þegar kemur að því að flytja aftur á klakann til að reyna að halda í við hina.. ;o)

 
At 9:14 f.h., Blogger Ally said...

HEY!
Mér finnst ég töff á nýja 7 manna bílnum mínum.
Reyndar verður fólk hvumsa þegar það heyrir að ég á tvö börn og á ekki von á mér. En ég gæti fengið mér hund í náinni framtíð ..... og hvar ætti hann þá að vera ef ég ætti ekki stóran bíl?

 
At 3:53 f.h., Blogger Hannes said...

andvarp...

... Allý, fáum við ekki bara að sitja í hjá þér, við verðum með aftari sætaraðirnar...

 

Skrifa ummæli

<< Home