föstudagur, febrúar 22, 2008

Öfugmælavísa!

Upplifði mína eigin öfugmælavísu rétt í þessu. Mér fannst einhvern veginn kominn tími til að taka niður jólaseríuna af svölunum og dengdi mér í það áðan í góða veðrinu hérna fyrir norðan sem gefur óneitanlega loforð um að það sé vor bara rétt handan við hornið. Af þessu tilefni skellti ég Hawaiidrengnum Jack Johnson á geislann og dillaði mér með í húla-húlasveiflu, umgringd gervigreni og jólaseríum. 

Góð blanda það.

1 Comments:

At 10:43 f.h., Blogger Elva said...

Skjótt skipast veður í lofti - það er orðið bara jólalegt aftur! Fullt af snjó :)

 

Skrifa ummæli

<< Home