sunnudagur, mars 29, 2009

Fótbolti!

Ég kíkti á fótboltamót hjá 9 ára frænda mínum í dag. Ég hef bara heyrt sögur af svona mótum, en ekki upplifað þetta sjálf. Ég verð að segja að mér finnst foreldrarnir aðeins vera að tapa sér. Þarna stóðu þau á orginu og hvöttu börnin sín mest áfram þegar þau höfðu tæklað einhvern andstæðinginn af krafti. Þau stóðu flest öll inni á vellinum sjálfum, hoppandi þar og skoppandi eins og bavíanar hreinlega. Ég fékk rosalegan kjánahroll.

1 Comments:

At 11:23 e.h., Blogger Anna Geirlaug said...

Já svona verða fótboltabullurnar til...sja að mamma og pabbi láta svona þá má ég alveg láta svona

 

Skrifa ummæli

<< Home