mánudagur, apríl 20, 2009

Apríl í myndum....

Aprílmánuður byrjaði vel fyrir  menningarvitana. Eftir ótrúlega skemmtilega Queen tribute tónleika hinn merka dag 26. mars kom færeyski söngfuglinn Eivör norður yfir heiðar og heiðraði okkur með nærveru sinni. Barkinn hennar inniheldur ekki bara rödd, hann er hreinlega hljóðfæri. Gæsahúðin kættist svo mjög að hún var viðvarandi næstu daga á eftir.


Hér má sjá hvernig hún beitir tungunni af hreinni snilld...

Annar stórviðburður í lífi mínu átti sér stað föstudaginn 17. apríl síðastliðinn. Þá fór ég í laseraðgerð á augunum til að endurheimta fulla sjón... þ.e. án þess að þurfa að styðjast við hjálpartæki eins og gleraugu eða linsur. Aðgerðin heppnaðist í alla staði vel og nú get ég fylgst með minnstu smáatriðum í kring um mig, óháð veðri og vindum :)

Mikið rosalega er maður nú smekklegur og sexý svona blindur og fínn beint eftir aðgerðina...

Á laugardaginn var var svo glímt um Grettisbeltið, dýrasta verðlaunagrip landsins. Þar tók frændgarður minn þátt, hvorki meira né minna en helmingur þátttakenda (4/8) sem er þess heiðurs aðnjótandi að geta titlað sig systursyni eða bróðursyni mína... Já sæll!!! Ekkert smá heppnir þeir. Þeir stóðu sig með stakri prýði að vanda og skipuðu þrír þeirra efstu sætin, sem er alveg nýtt í sögu þessarar gömlu þjóðaríþróttar, svo einstakt fyrirbæri að þulurinn var búinn að nauðga frasanum um frændurna frá Baldursheimi. Hann kom reyndar með eina góða hugmynd... að halda Íslandsglímuna í Baldursheimi... en 100. glíman verður einmitt að ári. Mæli með því að skipuleggjendur athugi málið :)

Hérna eru verðlauna hafarnir þrír, Jón Smári og Pétur Eyþórssynir og svo Pétur Þórir Gunnarsson.

Hérna gefur svo að líta frændgarðinn, Einar Eyþórsson og Bjarni Þór Gunnarsson hafa bæst í hópinn. Gaurarnir í glímubúningunum kepptu allir um Grettisbeltið en litli grísinn í hvítu peysunni hafði keppt í grunnskólamóti fyrr um morguninn og verið í verðlaunasæti.

Hérna er svo sigurvegarinn í faðmi fjölskyldunnar.

Þeirri litlu leist nú ekki meira en svo á þegar karl faðir hennar byrjaði að glíma að hún brast í grát en virðist hafa róast í lokin allavega. Fjórði skjöldurinn með nafninu hans kominn á beltið góða og planið að fjölga þeim enn. Þess má geta að hann var aldursforsetinn á mótinu, einungis þrjátíu ára. Iss... það er enginn aldur :)

8 Comments:

At 10:57 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Segi sama og þú, iss aldursforseti 30 ára!!! Frábært að þú sért búin að fá fulla sjón, ég stefni á þetta þegar ég á fyrir þessu...... kv. Malla

 
At 10:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Magnað, baldar klikka ekki frekar en vanalega : )
IB

 
At 4:52 e.h., Blogger Anna Geirlaug said...

Ja ef að glíman verður í Baldursheimi þá er stutt að fara...hahahaha

 
At 7:40 e.h., Blogger Elva said...

Mæli með 100. Íslandsglímunni í hlöðunni hjá Eyþóri. Þá mæti ég!

 
At 10:23 e.h., Blogger Bergþóra said...

Ja eða bara Sjólbrekku.
Við skulum vona að að ári verði hlöðurnar enn með nokkrar heytuggur innandyra.

 
At 11:45 f.h., Blogger Ingibjörg said...

Saxi farðu að blogga! það er kominn júlí!

 
At 5:39 e.h., Blogger Bergþóra said...

ja það er kominn miður september og ekkert að gerast?
ég þykist nú vita betur...

 
At 5:53 e.h., Blogger Bergþóra said...

Saxi farðu að blogga það eru liðin hvað rúmlega 2 ár...

 

Skrifa ummæli

<< Home